Skip to content

Verkefnið
Í þessu verkefni átt þú búa til talglærur þar sem þú útskýrir peninga og hvernig mikilvægt er að fara með þá.

Framkvæmdin
Þú þarft að huga vel að því að myndefnið sem þú notar styðji vel við það sem þú ert að segja. Passaðu upp á að hafa glærurnar sem einfaldastar með myndum, stökum orðum eða stuttum setningum. Þannig styðja þær við það sem sagt er í yfirlestrinum og draga fram aðalatriðin en innihalda ekki allan textan sem fluttur er. Það hjálpar mjög mikið við að halda athygli áhorfenda og til að draga athygli því sem skiptir máli að nota hreyfingu. Nýttu þér það.

Önnur skemmtileg útfærsla er að setja glærurnar upp sem frumgerð af appi. Þá væri hægt að taka upp skjáinn þegar farið er í gegnum appið.

Tæknin
Hér skaltu nota glærugerðarforrit. Þú getur svo flutt glærurnar út sem myndband eða tekið upp skjáinn meðan þú ferð í gegnum glærurnar.

Talsetning getur farið fram um leið og skjáupptakan eða í eftirvinnslu í klippiforriti.